Leturstęrš
Lítið Venjulegt Stórt
 
  1. ÞJÓNUSTULÍNUR
    1. Öryggismál og stjórnun
    2. Umhverfi og skipulag
    3. Byggðatækni og samgöngur
    4. Verkefnastjórn
    5. Mannvirki
    6. Tæknikerfi
  2. ATVINNUGREINAR
  3. Opinberir aðilar
  4. Orka og stóriðja
  5. Sjávarútvegur
  6. Verslun og þjónusta
  7. VERKEFNI
  8. Mat á umhverfisáhrifum
  9. Skipulagsverkefni
  10. Valin verkefni
  11. HAFA SAMBAND
  12. Almennar upplýsingar
  13. Starfsmenn
  14. Starfsumsókn
  15. UM VSÓ RÁÐGJÖF
  16. Gæðastjórnunarkerfi
  17. Samstarfsaðilar
  18. Skipurit
  19. > FRÉTTIR
  20. FORSÍÐA
  21. ENGLISH

Lokaðir vefir:

Forsķša - Fréttir - Byggingavaktin, útgáfa nýrrar skýrslu

Byggingavaktin, útgáfa nýrrar skýrslu (4.12.09)

 

Mánudaginn 7. desember kemur út hjá VSÓ Ráðgjöf ný útgáfa Byggingavaktarinnar, skýrslu um framboð íbúðarhúsnæðis í nýbyggingum. Byggingarvaktin kemur nú út í annað sinn en fyrsta útgáfa hennar leit dagsins ljós í júní. Nýrri útgáfu skýrslunnar er ætlað að byggja ofan á fyrri útgáfu með úttekt á stærra svæði og uppfærslu á upplýsingum sem koma fram í fyrri skýrslu m.t.t. þróunar undanfarna mánuði og ábendinga sem fram hafa komið um innihald hennar.

Í nýrri skýrslu verður gerð grein fyrir framboði nýbyggðs íbúðarhúsnæðis í sveitarfélögunum sjö á höfuðborgarsvæðinu og einnig á klukkustundarbeltinu þ.e. þeim þéttbýlisstöðum sem á annatíma eru í um klukkustundar akstursfjarlægð frá miðborg Reykjavíkur en það eru Suðurnes, Akranes, Árborg og Hveragerði. Klukkustundabeltið er ný viðbót við Byggingavaktina en í fyrri skýrslu var ekki farið út fyrir höfuðborgarsvæðið.

Meðal niðurstaða í nýrri skýrslu má nefna að á höfuðborgarsvæðinu eru ríflega þrjúþúsund íbúðir í byggingu en auk þeirra eru ríflega fjögur þúsund lóðir á höfuðborgarsvæðinu tilbúnar til framkvæmda. Gera má ráð fyrir að um 1000-1500 íbúðir seljist á ári hverju og er framboðið því ríflegt af nýbyggingum næstu árin.

Einnig má nefna að flestar þeirra íbúða sem langt eru komnar eru í Reykjavík en þar eru þær 650 talsins. Þá eru 450 langt komnar íbúðir í Hafnarfirði og 400 í Kópavogi. Fæstar eru íbúðir í byggingu hinsvegar á Seltjarnarnesi, alls 30 talsins. Um 80% íbúða í byggingu eru í fjölbýlishúsum.

Byggingavaktin hefur, frá því hún kom fyrst út í júní, vakið talsverða athygli og umræðu um stöðuna á byggingamarkaði en mikill skortur var fram að þeim tíma á allri yfirsýn yfir þennan markað. Nokkrum sinnum hefur verið fjallað um niðurstöður Byggingarvaktarinnar í fréttum, nú síðast í sjónvarpsfréttum RÚV þann 3. des. sl.

 

Allar nánari upplýsingar um Byggingavaktina veitir Sverrir Bollason skipulagsfræðingur hjá VSÓ Ráðgjof

 


Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími: 585 9000, fax: 585 9010, netfang: vso@vso.is