Byggingavaktin í Mogganum (15.02.10)
Laugardaginn 13. febrúar fjallaði Morgunblaðið um stöðuna á lóða- og byggingamarkaði. Úttekt blaðsins byggði meðal annars á gögnum Byggingarvaktar VSÓ Ráðgjafar.
Enn á ný sést hve brýnt er að áhrifavaldar í stjórnsýslu og þróun byggingaverkefna hafi óháð gögn til að veita yfirsýn. Staðan á þessum markaði er býsna flókin og lítur hver hana sínum augum. Byggingavaktin veitir sjálfstæðan grunn til að greina stöðuna og heildaryfirsýn.
Sverrir Bollason, skipulagsverkfræðingur hjá VSÓ svarar fyrirspurnum um byggingarvaktina og þær upplýsingar sem hún veitir.
Frétt mbl.is - frá 13.02.2010
Eldri frétt VSÓ um Byggingavaktina - frá 4.12.2009
|