![Jóla- og nýjárskveðjur frá VSÓ Ráðgjöf](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2019/12/Fridur-i-fifu-700-538.jpg)
Jóla- og nýjárskveðjur frá VSÓ Ráðgjöf
Starfsfólk VSÓ óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og heillaríks komandi árs, með kærri þökk fyrir samstarfið á liðnu ári. Skrifstofan verður lokuð 27. og 30. desember en hægt er að nálgast netföng og símanúmer starsmanna á vefnum.
![Heimsmarkaðsmið Sameinuðu þjóðanna og Vegagerðin](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2019/12/Heimsmarkmid-2019-700x538-1.jpg)
Heimsmarkaðsmið Sameinuðu þjóðanna og Vegagerðin
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og Vegagerðin var yfirskrift á erindi Bryndísar Skúladóttur á Rannsóknarráðstefnu Vegagerðarinnar 2019. Markmiðin, sem gilda á tímabilinu 2016-2030, eru 17 talsins með 169 undirmarkmið og taka bæði til innanlandsmála sem og alþjóðasamstarfs.
![Húsnæðismál](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2019/11/Reykjavik_litrik_hus_700x538.jpg)
Húsnæðismál
Sverrir Bollason verkfræðingur hjá VSÓ Ráðgjöf hélt erindi á Skipulagsdeginum 8. nóvember síðastliðinn og fór yfir reynslu sína af gerð húsnæðisáætlana. Skipulagsdagurinn er árleg ráðstefna um skipulagsmál sem Skipulagsstofnun stendur að í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga.
![Er kolefnishlutleysi bygginga raunhæft markmið?](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2019/10/Graent-hus-700x538.jpg)
Er kolefnishlutleysi bygginga raunhæft markmið?
Það er í mörg horn að líta þegar draga á úr innbyggðri kolefnislosun bygginga og lágmarka kolefnislosun rekstrar. VSÓ setur markið á kolefnishlutlausar byggingar í náinni framtíð og býður upp á fjölbreyttar lausnir til að auka sjálfbærni og draga úr loftslagsáhrifum.
![Vindmyllur á Grjóthálsi – Drög að matsáætlun](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2019/10/Grjothals-700x538.jpg)
Vindmyllur á Grjóthálsi – Drög að matsáætlun
Áformað er að reisa vindmyllur í landi Hafþórs- og Sigmundarstaða í Borgarbyggð. Í drögum að matsáætlun er m.a. fjallað um helstu áhrifaþætti framkvæmdarinnar og þá umhverfisþætti sem kunna að verða fyrir áhrifum. Drögin má nálgast hér á vefnum en frestur til að senda inn ábendingar er til 15. nóv. 2019.
![Endurbætur á Þingvallavegi](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2019/09/Thingvallavegur-700x538.jpg)
Endurbætur á Þingvallavegi
Á næstu dögum lýkur seinni hluta framkvæmda við endurbætur á Þingvallavegi. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá dæmi um útlit vegarins fyrir og eftir framkvæmdir því sjón er sannarlega sögu ríkari!
![Kolefnisspor bygginga og vistvæn hönnun](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2021/01/Heldur_a_plontu-700x538-1080x675.jpeg)
Kolefnisspor bygginga og vistvæn hönnun
VSÓ Ráðgjöf skoðar umhverfisáhrif mannvirkja og býður upp á ýmsar lausnir til að auka sjálfbærni og draga úr loftslagsáhrifum, allt frá hönnun og skipulagi til niðurrifs. Mikilvægt er að draga úr losun á gróðurhúsalofttegundum. Verkfræðingar geta lagt þung lóð á vogarskálina til að það gangi eftir.
![Nýr gámakrani í Sundahöfn](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2019/08/Eimskip-Straumur-x1020-886x675.jpg)
Nýr gámakrani í Sundahöfn
Eimskip hefur nú tekið í notkun stærsta gámakrana landsins sem jafnframt er hæsta mannvirki höfuðborgarsvæðisins. Nýi kraninn sem fengið hefur nafnið Straumur, leysir af hólmi gámakranann Jaka sem hefur þjónað Eimskip dyggilega síðan 1984.
![Opnun nýs hjúkrunarheimilis við Sólvang](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2019/07/Solvangur-535x411.jpg)
Opnun nýs hjúkrunarheimilis við Sólvang
Nýtt hjúkrunarheimil við Sólvang í Hafnarfirði var opnað við formlega athöfn þann 17. júlí síðastliðinn. Í nýju byggingunni eru 60 ný hjúkrunarrými ásamt tilheyrandi stoðrýmum og tengingu við eldri byggingu. VSÓ annaðist hönnun jarðtækni, burðarvirkja, rafkerfa, lagnakerfa og loftræsikerfa byggingarinnar.
![Loftslagsbreytingar, álag og öryggi bygginga](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/02/Alda-700x538.jpg)
Loftslagsbreytingar, álag og öryggi bygginga
Hitastig jarðar fer síhækkandi og hefur m.a. í för með sér hækkun sjávarmáls og auknar líkur á öfgaveðri. Brýnt er að skoða hvaða breytingar á álagsforsendum og hönnun þurfa að eiga sér stað til að lágmarka tjón vegna aukinnar tíðni öfgaveðurs.
![Skyndihjálparmaður ársins 2018](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2019/02/gudniskyndihj-700x538.jpeg)
Skyndihjálparmaður ársins 2018
Rauði krossinn á Íslandi stendur árlega fyrir vali á skyndihjálparmanni ársins og Guðni Ásgeirsson starfsmaður á Tæknisviði VSÓ Ráðgjafar var á dögunum valin Skyndihjálparmaður ársins 2018.
![Ráðgjöf við gerð húsnæðisáætlana](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/03/Skipulag2-700x538.jpg)
Ráðgjöf við gerð húsnæðisáætlana
Gengin er í gildi reglugerð þar sem krafa er gerð til sveitarfélaga um að þau ljúki við gerð húsnæðisáætlana fyrir 1. mars. VSÓ hefur leitt vinnu við á annan tug húsnæðisáætlana víða um land og hefur yfir að ráða sérfræðingum með einstaka reynslu og þekkingu á þessu sviði.
![Stækkun Keflavíkurflugvallar](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/03/FLE2-700x538.jpg)
Stækkun Keflavíkurflugvallar
Isavia ohf. hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum á stækkun Keflavíkurflugvallar.
Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.