18. október 2019
Vindmyllur á Grjóthálsi
Mat á umhverfisáhrifum framkvæmda | Drög að matsáætlun
Áformað er að reisa 2 – 6 vindmyllur í landi Hafþórsstaða og Sigmundarstaða í Borgarbyggð og er áætlað afl þeirra 9,8 – 30 MW. Framkvæmdaraðili er félag sem stofnað yrði um framkvæmdina í samstarfi við eigendur Hafþórsstaða og Sigmundarstaða í Borgarfirði. Mat á umhverfisáhrifum er unnið af VSÓ Ráðgjöf.
Í drögum að matsáætlun er m.a. fjallað um helstu áhrifaþætti framkvæmdarinnar og þá umhverfisþætti sem kunna að verða fyrir áhrifum. Þá er gerð grein fyrir hvernig staðið verður að vinnu vegna mats á umhverfisáhrifum og hvaða gögn og rannsóknir verða lögð til grundvallar matinu. Drög að matsáætlun hefur nú verið auglýst til kynningar og hana má nálgast með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan.
Senda skal skriflegar athugasemdir eða ábendingar um drög að matsáætlun á netfangið erla@vso.is eða VSÓ Ráðgjöf (b.t. Erla Björg Aðalsteinsdóttir) Borgartún 20, 105 Reykjavík.
Frestur til að senda inn ábendingar er til 15. nóvember n.k.
Fréttatilkynning
Í fréttatilkynningu sem send var fjölmiðlum um verkefnið kemur eftirfarandi fram:
Aðgerðir í loftslagsmálum hafa stuðlað að örri framþróun í hagnýtingu vinds. Tæknilegar framfarir geta gert minni verkefni eins og hér um ræðir hagkvæmari en áður. Til skoðunar eru nokkrir valkostir. Minnsti valkostur sem skoðaður verður er ein vindmylla á hvorri jörð eða tvær alls. Stærsta útfærslan er 6 myllur alls með 85 metra turnhæð, en 150 metra hæð á oddi vængs þegar hann er í hæstu stöðu. Framleiðslugeta valkosta er á bilinu 9,8-30 MW. Til samanburðar eru önnur verkefni á Vesturlandi 24-35 vindmyllur hvert.
Sl. 3 ár hafa lauslegar athuganir verið gerðar og benda ýmsir þættir til að staðsetningin geti hentað fyrir orkuframleiðslu af þessu tagi. Þannig er mikill og jafn vindur á Grjóthálsi stærstan hluta ársins. Einnig er vegur upp hálsinn og háspennulínur með stálmöstrum. Er því bæði um þegar raskað svæði að ræða og ekki þarf að reisa háspennulínur til að flytja orkuna. Fjölmarga þætti þarf hins vegar að rannsaka svo meta megi hvort svæðið henti í raun og veru. Þar má nefna fuglalíf, yfirflug fugla, áhrif á náttúrufar, áhrif á aðra starfsemi og ásýnd. Slíkar rannsóknir eru tímafrekar en búast má við fyrstu niðurstöðum á næsta ári. Verði rannsóknarniðurstöður jákvæðar og verkefnið hagkvæmt, þurfa verkefni yfir 10 MW að metast í rammaáætlun, en óvíst er hvenær það yrði. Síðar í ferlinu reynir einnig á skipulagsþátt málsins og aðra leyfisveitendur eftir atvikum.
Helsta áhrifasvæði verkefnisins yrði Þverárhlíð og Norðurárdalur ofan Grábrókar. Óformlegur kynningarfundur var haldinn fyrir íbúa þar fyrr í mánuðinum og verða fleiri slíkir haldnir í Borgarbyggð á meðan matsferlinu stendur.