Dalskóli í Úlfarsárdal
Í Úlfarsárdal í Reykjavík hefur verið byggð sannkölluð miðstöð mennta menningar og íþrótta. Þar er að finna bæði leikskóla og grunnskóla, frístundaheimili, bókasafn, sundlaug og íþróttamiðstöð ásamt íþróttavöllum og leikvöllum utanhúss, allt í sama kjarnanum.
Hönnun miðstöðvarinnar er glæsileg í alla staði og búnaður og aðstaða til mikillar fyrirmyndar. Þar er til dæmis fullbúið hljóðver, upptökuver og hengikoja. Þá er óvanalegt að í sömu byggingu séu bæði sundlaug og bókasafn og nokkur áskorun var fyrir arkitekta og verkfræðihönnuði að flétta saman þá ólíku starfsemi.
Mannvirkin eru í heild um 18 þúsund fermetrar. Framkvæmdir stóðu yfir í u.þ.b. 6 ár og er framkvæmdin ein sú stærsta sem Reykjavíkurborg hefur ráðist í. Arkitektar bygginganna eru VA Arkitektar, Landmótun sá um lóðarhönnun og VSÓ Ráðgjöf sá um alla verkfræðihönnun. Byggingarnar eru hannaðar í þrívíd með BIM aðferðafræði.
Gerðar eru miklar kröfur til frágangs og umhverfis m.a. vegna nálægðar við Úlfarsá. Einnig eru byggingarklasinn hannaður með BREEAM umhverfisvottun í huga sem m.a. gerir miklar kröfur tikl orkunotkunar, sjálfbærni og vistvænna lausna.
Hlutverk VSÓ í verkefninu:
- Hönnun jarðtækni.
- Hönnun burðarvirkja.
- Hönnun lagna.
- Hönnun loftræsikerfa.
- Hönnun rafkerfa.
- Ráðgjöf um eðslifræði bygginga.
- ÖHU áætlanir.
- Lífsferilsgreining LCA, í samræmi við kröfur BREEAM.
- BREEAM ráðgjöf.
Verktími: 2015- 2021.
Verkkaupi: Reykjavíkurborg.