Fosseveien, endurbætur á vegi og stoðvegg
Í verkefninu felst hönnun vegna endurnýjunar og lagfæringa á Fosseveien í Halden kommune, Noregi (~250m). Endurnýja þurfti m.a. spúnsþil (stoðvegg), veitulagnir og götulýsingu. Eldra spúnsþil við veginn var farið að láta verulega á sjá vegna ryðs og álags, þannig að mikil hætta var á að það gæti rifnað og vegurinn hrunið yfir nærliggjandi byggingar o.fl.
Hlutverk VSÓ í verkefninu:
- Hönnun vegar.
- Hönnun veitukerfa.
- Hönnun jarðtækni.
- Hönnun burðarvirkja (spúnsþils).
- Hönnun rafkerfa og lýsingar.
Verktími: 2011-2012.
Verkkaupi: Halden kommune.