![Jóla- og nýjárskveðjur frá VSÓ Ráðgjöf](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/12/Alftir-700x538.jpg)
Jóla- og nýjárskveðjur frá VSÓ Ráðgjöf
Starfsfólk VSÓ óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og heillaríks komandi árs, með kærri þökk fyrir samstarfið á liðnu ári. Í tilefni jólanna styrkjum við hjá VSÓ kaffistofu Samhjálpar sem starfrækt er í Borgartúni 1, fyrir utangarðsfólk og aðra aðstöðulausa.
![Reykjanesvirkjun, meðferð og förgun útfellinga](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/12/Svartsengi-700x538.jpg)
Reykjanesvirkjun, meðferð og förgun útfellinga
Drög að tillögu að matsáætlun vegna meðferðar og förgunar útfellinga frá Reykjanesvirkjun er nú auglýst til kynningar. HS Orka er framkvæmdaraðili en mat á umhverfisáhrifum er unnið af VSÓ. Frestur til að senda inn ábendingar er til 19. jan. n.k.
![Stór verkefni í Jessheim, Noregi](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/12/Jessheim-kirke-700x538.jpg)
Stór verkefni í Jessheim, Noregi
VSÓ vinnur að þrem stórum verkefnum í Jessheim um þessar mundir þ.e. nýrri kirkjubyggingu og tveimur fjölbýlishúsakjörnum með yfir 100 íbúðir hvor. Um er að ræða áhugaverð og skemmtileg verkefni við krefjandi aðstæður.
![Dregið úr kolefnisspori VSÓ](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/11/VW-up-700x538.jpg)
Dregið úr kolefnisspori VSÓ
VSÓ er annt um umhverfið og vill gera sitt til að draga úr kolefnisspori sínu. Til þess hefur verið ráðist í ýmsar aðgerðir s.s. að nýta metanbíla við akstur, gróðursetja tré og hvetja starfsfólk til notkunar vistvænna ferðamáta.
![Ný menningarmiðstöð í Drøbak tekin í notkun](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/12/Drobak-flerbrukshus-535x411.jpg)
Ný menningarmiðstöð í Drøbak tekin í notkun
Tekin hefur verið í notkun ný menningarmiðstöð í bænum Drøbak í Noregi sem VSÓ sá um verkfræðilega hönnun á. Um er að ræða byggingu sem hýsir í senn kapellu, skrifstofur, fundarherbergi og fjölnota tónleikasal sem tekur 400 manns í sæti.
![Fjölbreytt og spennandi starf](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/12/Sandra-535x354.jpg)
Fjölbreytt og spennandi starf
Sandra Dís Dagbjartsdóttir byggingarverkfræðingur starfar á verkefnastjórnunarsviði VSÓ. Hún segir fjölbreytileikann það besta við starf sitt en Sandra vinnur að mörgum ólíkum verkefnum, meðal annars nýja Landspítalanum og tengivirki í Vestmannaeyjum.
![Verðlaunasæti í skipulagssamkeppni um Lyngás](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/09/Lyngas-samkeppni-535x411.jpg)
Verðlaunasæti í skipulagssamkeppni um Lyngás
VSÓ Ráðgjöf vann fyrir stuttu til verðlauna í samkeppni um rammaskipulag fyrir Lyngássvæðið í Garðabæ. VSÓ, í samstarfi við hollensku stofurnar Jvantspijker arkitekta og Felixx landslagsarkitekta, hreppti 3.-4. sæti.
![Þörf á heildarstefnu um vegvísa](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/08/Verkefni-vegskilti-300x230.jpg)
Þörf á heildarstefnu um vegvísa
VSÓ skilaði nýlega rannsóknarskýrslu til Vegagerðarinnar um stefnumótun í uppsetningu skilta meðfram vegakerfinu. Ýmsir aðilar sækja að Vegagerðinni um að fá að setja upp skilti sem vísa á starfssemi þeirra og því þarf að vera skýrt hvað má og hvað ekki.
![Yfirvofandi hækkun sjávar ekki tekin nógu alvarlega](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/06/Verkefni-Strond-200x150.jpg)
Yfirvofandi hækkun sjávar ekki tekin nógu alvarlega
Hækkandi sjávarstaða vegna loftslagsbreytinga er möguleiki sem taka þarf alvarlega. Misbrestur er á að reglur Skipulagsstofnunar um skipulag byggðar þar sem hætta er á flóðum séu hafðar til hliðsjónar við skipulagsgerð.
![Aukin áhersla samfélagslegra þátta við umhverfismat áætlana](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/08/Verkefni-rautt-blom-300x230.jpg)
Aukin áhersla samfélagslegra þátta við umhverfismat áætlana
VSÓ hefur metið umhverfisáhrif skipulags- og framkvæmdaáætlana fyrir fjölmarga aðila á undanförnum árum. Samfélagslegir- og hagrænir þættir hafa að undanförnu verið að fá aukið vægi í matinu, án þess þó að það komi niður á mati á náttúrufarslegum áhrifum.
![Ný íþróttamiðstöð Golfklúbbbs Kópavogs og Garðabæjar](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/05/Golfskali-GKG-700x538.jpg)
Ný íþróttamiðstöð Golfklúbbbs Kópavogs og Garðabæjar
Ný íþróttamiðstöð Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar (GKG) var opnuð með formlegum hætti í apríl en í byggingunni er m.a. fullkomin aðstaða til æfinga og kennslu á golfíþróttinni. Byggingastjórn og framkvæmdaeftirlit við verkefnið var í höndum VSÓ.
![Mat á umhverfisáhrifum jarðhitavirkjana í Eþíópíu](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/04/Ethiopia-700x538.jpg)
Mat á umhverfisáhrifum jarðhitavirkjana í Eþíópíu
Sérfræðingar VSÓ eru nú að ljúka mati á umhverfisáhrifum fyrsta áfanga 500 MW jarðhitavirkjunar í Eþíópíu. Verkefnið er um margt áhugavert þar sem tveir ólíkir menningarheimar mætast og geta lært hvor af öðrum.
![Niðurrif og förgun byggingarefna](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/02/Rif-300x230.jpg)
Niðurrif og förgun byggingarefna
Mikilvægt er að standa rétt að förgun byggingarefna við rif og endurbætur á byggingum til að forðast umhverfisvandamál. VSÓ hefur komið að ýmsum slíkum verkefnum í Noregi og orðið sér úti um mikilvæga reynslu.
![VSÓ meðal framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo 2015](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/01/Borgartun-VSO-700x538.jpg)
VSÓ meðal framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo 2015
VSÓ er árið 2015 meðal framúrskarandi fyrirtækja fjárhags- og viðskiptaupplýsingafyrirtækisins Creditinfo, annað árið í röð. Einungis frirtæki sem uppfylla ströng skilyrði komast á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki ársins.
![Framkvæmdum að ljúka við eina stærstu frystigeymslu landsins](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/01/Fjardarfrost16-700x538.jpg)
Framkvæmdum að ljúka við eina stærstu frystigeymslu landsins
Senn lýkur byggingu nýrrar frystigeymslu Eimskips við Hafnarfjarðarhöfn, sem hlotið hefur nafnið Fjarðarfrost. Aðeins liðu um 9 mánuðir frá því að byggingaframkvæmdir hófust og þar til fyrstu vörurnar voru teknar inn í fyrri frystiklefann af tveimur.
![Nýtt aðalskipulag Keflavíkurflugvallar](https://www.vso.is/wp-content/uploads/2016/03/FLE2-700x538.jpg)
Nýtt aðalskipulag Keflavíkurflugvallar
Nýtt aðalskipulag Keflavíkurflugvallar hefur nú verið lagt fram til umsagnar. Í því er m.a. gert ráð fyrir nýrri flugbraut og stórfelldri upbyggingu á þjónustusvæðum. Markmið skipulagsins er að móta framtíðarsýn landnýtingu, uppbyggingu og þjónustuumhverfi.