2. apríl 2017
Reykjanesvirkjun, meðferð og förgun útfellinga
Tillögu að matsáætlun vegna meðferðar og förgunar útfellinga frá Reykjanesvirkjun í Reykjanesbæ hefur nú verið auglýst til kynningar. HS Orka er framkvæmdaraðili verksins en mat á umhverfisáhrifum er unnið af VSÓ Ráðgjöf.
Áður hafði verið til kynningar drög að tillögu að matsáætlun og hefur verið tekið tillit til þeirra athugarsemda sem bárust við drögin.
Í tillögu að matsáætlun er m.a. gerð grein fyrir eftirfarandi:
• Hvernig staðið verður að vinnu vegna mats á umhverfismálum
• Helstu áhrifaþáttum framkvæmdar
• Umhverfisþáttum sem kunna að verða fyrir áhrifum
• Gögnum og rannsóknum sem lögð verða til grundvallar matinu
Almenningur er hvattur til að kynna sér efni tillögunnar og skal senda skriflegar athugarsemdir eða ábendingar til Skipulagsstofnunar á netfangið skipulagsstofnun@skipulagsstofnun.is eða bréfleiðis til Skipulagsstofnunar, Borgartún 7b, 105 Reykjavík.
Reykjanesvirkjun: Meðferð og förgun útfellinga – Matsáætlun