24. nóvember 2022
Ástand stoppistöðva almenningsamgangna á landsvísu
Markmið rannsóknarinnar var að meta ástand stoppistöðva almenningssamgangna á Íslandi og miðaðist hún að ferðum Strætó bs. Skoðaðar voru allar biðstöðvar þeirra leiða sem má sjá á mynd hér til hægri. Um er að ræða 17 akstursleiðir almenningsvagna sem nýta sér samanlagt 168 biðstöðvar í kringum landið.
Stjórnvöld hafa sett sér það markmið að árið 2024 muni 90% stoppistöðva almenningssamgangna standast hönnunar- og öryggiskröfur. Markmiðin fela m.a. í sér greiðar og öruggar almenningssamgöngur fyrir alla og stjórnvöld ætla að leita leiða til að tryggja jafnt aðgengi fatlaðra, hreyfihamlaðra og ófatlaðra einstaklinga að almenningssamöngum milli byggða.
Niðurstöður greiningarinnar geta sveitarfélög og/eða veghaldarar notað til að tryggja að markmið stjórnvalda náist í áframhaldandi vinnu. Til að mynda við gerð aðgerðaráætlunar og kostnaðaráætlunar og til að skapa upplýstari umræðu um ástandið.
Gerð var vefsjá fyrir verkefnið þar sem biðstöðvarnar sem skoðaðar voru eru sýndar á korti ásamt því að fram koma upplýsingar um aðstæður og ástand hverrar stöðvar. Einnig hefur ÖBÍ sett á vefsíðu sína textaútgáfu skýrslunnar en þar má hlusta á skýrsluna með talþuli eða öðru hjálpartæki sem hentar.
Vert er að hafa í huga að fatlaðir einstaklingar hafa mismikla fötlun. Þó stöð sé hér gefin upp í þessum gögnum sem mögulegt stopp fatlaðra ferðamanna, þá getur raunin verið önnur. Því hvetjum við notendur að kynna sér málin vel áður en lagt er af stað í langferðir.
Biðstöðvar – aðgengi og yfirborð, vefsjá.
Ástand stoppistöðva á landsvísu, skýrsla.
Ástand stoppistöðva á landsvísu, textaútgáfa á vef ÖBÍ – fyrir talþuli og önnur hjálpartæki.
Ragnar Þór Þrastarson
Iðnaðar- og rekstrarverkfræðingur M.Sc.
ragnar@vso.is
s: 585 9208