Umhirða grænna svæða
Umhirðuáætlanir ná til lengri eða skemmri tíma og hafa áhrif á viðhald, þróun og rekstur grænna svæða. Þessar áætlanir eru mikilvægt stjórntæki þeirra sem hafa yfirumsjón með umhirðu grænna svæða, hvort sem er innan sveitarfélaga eða einstakra fyrirtækja. Umhirðuáætlanir byggja á fyrirfram skilgreindum umhirðuviðmiðum þar sem skilgreindir hafa verið þeir lykilþættir sem huga þarf að í umhirðunni. Umhirðuáætlanir eru hluti af ákveðnu ferli sem unnið er eftir og byggir það m.a á teikningum og loftmyndum, greiningu á svæðum og faglegu mati. Að loknu þessu ferli verður til mjög nákvæmt safn upplýsinga og yfirlit yfir þau grænu svæði sem áætlunin nær til. Umhirðuáætlunin inniheldur einnig stefnu í umhirðumálum til lengri tíma.
VSÓ Ráðgjöf hefur bæði séð um verkefnastjórn við gerð umhirðuáætlana og tekið að sér gerð þeirra í nánu samstarfi við verkkaupa. Einnig sinnir VSÓ tilboðs- og áætlanagerð í tengslum við útboð ýmissa þjónustuverkefna sem falla undir umhirðuverkefni og hefur sinnt eftirlitsstörfum í tengslum við umhirðu og yfirborðsfrágang. VSÓ hefur einnig verið í nánu samstarfi við Iceconsult og Reykjavíkurborg í tengslum við þróun á Umhirðustjóranum, hugbúnaði sen er sérhannaður fyrir umhirðustjórnun.
Þær lausnir sem VSÓ Ráðgjöf býður upp á henta vel þeim sveitarfélögum, stofnunum, og fyrirtækjum sem vilja koma góðu verklagi á umhirðu grænna svæða. Við aðstoðum einnig einkaaðila sem þess óska með umhirðu einkalóða og frístundasvæða.
Í umhirðuteymi VSÓ Ráðgjafar má m.a finna:
- Skrúðgarðyrkjumeistara
- Landslagsarkitekt
- Umhverfisfræðing
- Sérfræðinga í ArcGis
Dæmi um verkefni VSÓ á sviði umhirðu eru:
- Umhirðuáætlun fyrir Reykjavíkurborg
- Umhirðuáætlun fyrir Þjórsárvirkjanir
- Umhirðuáætlun fyrir Garðabæ
- Tilboðs- og áætlanagerð fyrir Alcan í Straumsvík
- Eftirlit með yfirborðsfrágangi við Laugarneskirkju
- Eftirlit með yfirborðsfrágangi við Nýbýlaveg
- Gerð upplýsingahandbókar fyrir sumarstarfsmenn Landsvirkjunar
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Droplaug Jónsdóttir