
Lagna- og loftræsikerfi
VSÓ Ráðgjöf hefur mikla reynslu í hönnun lagnakerfa í húsbyggingum, bæði almennra lagna- og loftræsikerfa sem og flóknari og sérhæfðari kerfa. Hönnun lagna er ekki aðeins ákvörðun á pípustærðum og afkastagetu ofna. Hún snertir einnig gæði þess umhverfis sem fólk lifir og hrærist í og þar með líðan þess.
Við leggjum áherslu á víðtæka þekkingu og upplýsingar um allar nýjungar á þessu sviði. Meðal viðfangsefna eru :
- Hita- og þrifakerfi
- Snjóbræðslukerfi
- Loftræsikerfi
- Kælikerfi
- Almenn og sérhæfð slökkvikerfi (sprinkler)