Nýi Landspítalinn við Hringbraut, Rannsóknarhús
Í verkefninu felst hönnun rannsóknarhúss Landspítalans á 5 hæðum ásamt kjallara á einni hæð, alls ~17.500 m2. Byggingin hýsir m.a. blóðbanka og blóðsöfnun, krufningu og réttarmeinafræði ásamt rannsóknarstofum og aðstöðu fyrir t.d. vefjameinafræði, lífefnafræði, blóðmeinafræði, erfða- og sameindalæknisfræði, ónæmisfræði, sýkla- og veirufræði og fleira. Byggingin er hönnuð með BIM aðferðafræði.
Hlutverk VSÓ í verkefninu:
- Hönnun burðarvirkja.
- Hönnun jarðtækni.
- Hönnun lagna- og loftræstikerfa.
- Byggingareðlisfræðileg ráðgjöf.
- BREEAM ráðgjöf og rýni.
- Verkefnisstjórn hönnunar fyrir öll fagsvið.
Verktími: 2018-2023.
Verkkaupi: NLSH ohf.