Smáraturn, verslunar og skrifstofuhúsnæði
Verslurnar- og skrifstofuhúsnæði við Smáratorg í Kópavogi
Í verkefninu felst bygging skrifstofu- og verslunarhúsnæðis á 20 hæðum við Smáratorg í Kópavogi. Turninn er 77,6 metrar á hæð og þ.a.l. hærri en Hallgrímskirkjuturn, sem er 76 metra hár. Í turninum sjálfum eru 14.000 m2 af skrifstofu- og verslunarrými en því til viðbótar eru í byggingunni 7.000 m2 af verslunarhúsnæði, og 10.000 m2 bílageymslur.
Að auki felst í verkefninu bygging 5.000 m2 bílastæðabrúar á milli Smáraturns og Smáralindar.
Hlutverk VSÓ í verkefninu:
- Verkefnisstjórnun.
- Framkvæmdaeftirlit.
Verktími: 2005-2008.
Verkkaupi: Smáratorg ehf.