



Staðarvalsráðgjöf
Staðsetning er grundvallarþáttur í öllum atvinnurekstri. Val á réttum stað fyrir fjárfestingu og uppbyggingu er lykillinn að árangri. Hvort sem ætlunin er að reisa nýja framleiðslueiningu, stofna útibú eða ráðast í nýsköpun þá er mikilvægt að byrja á réttum stað.
VSÓ Ráðgjöf er leiðandi í þekkingu á staðháttum og gefur viðskiptavinum kost á að bera saman ólíka valkosti með þarfir hvers og eins að leiðarljósi. Við getum boðið upp á heildstætt yfirlit yfir staðhætti og innviði um land allt, tekið saman lykilþætti og metið aðstæður og tækifæri í okkar eigin staðarvalskerfi svo valið verði skýrt.
Miklar framfarir hafa orðið í söfnun og birtingu landupplýsinga sem VSÓ Ráðgjöf hefur tileinkað sér og gerir okkur kleift að veita þá ráðgjöf sem þarf svo verkefnið komist á réttan stað. Þar má nefna heildstætt yfirlit yfir svæði sem henta til atvinnuuppbyggingar og hvernig þau tengjast þeim innviðum sem skipta máli hverju sinni. Hvort sem áherslan er á snögga uppbyggingu eða sérhæft val þá hjálpum við að finna lausn sem veitir forskot.
VSÓ Ráðgjöf er með fjölbreytta reynslu á sviði staðarvalsráðgjafar. Þar má nefna:
- Val á staðsetningu fyrir iðnfyrirtæki og staðfesting á fyrri ákvörðunum
- Staðarval fyrir Háskólann í Reykjavík
- Staðarval fyrir grunnskóla
- Staðarval fyrir olíubirgðastöð
- Staðarval fyrir baðlón
Meðal þeirra þátta sem við getum tekið saman eru:
- Viðeigandi stærð lóðar fyrir starfsemi
- Aðgengi að veitukerfum
- Aðgengi að flutningskerfum
- Aðgengi að vinnumarkaði
- Staða svæðis í skipulagi
Þegar búið er að velja stað eða mögulega staði er VSÓ Ráðgjöf innan handar með þróun skipulags, framkvæmdaráðgjöf og mat á umhverfisáhrifum. Við höfum aðstoðað fjölda iðnfyrirtækja með ráðgjöf með tilliti til laga um umhverfis- og öryggismál.
Stefán Gunnar Thors
Sviðsstjóri umhverfis og skipulags
Umhverfishagfræðingur M.Sc.
stefan@vso.is
s: 585 9180