Sulitjelma barnaskóli
Viðbygging og endurbætur grunnskóla í Fauske, Noregi
Í verkefninu felst hönnun 1.125 m2 viðbyggingar og endurbætur á 1.676 m2 eldri byggingu við grunnskóla í sveitarfélaginu Fauske í Noregi. Einnig fólst í verkefninu niðurrif á 1.530 m2 eldri skólabyggingu. Byggingin er hönnuð í þrívídd með BIM aðferðarfræði.
Hlutverk VSÓ í verkefninu:
- Hönnun lagna- og loftræsikerfa.
- Hönnun rafkerfa og lýsingar.
- Hönnun burðarvirkja vegna endurbóta á þaki eldri byggingar.
Verktími: 2010-2013.
Verkkaupi: Fauske kommune í Noregi.