Úrgangsstjórnun
VSÓ Ráðgjöf er leiðandi í úrgangsstjórnun og hefur öflugan hóp starfsfólks með þekkingu og reynslu í úrgangsmálum. Hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins er höfð að leiðarljósi í verkefnum – að auka líftíma auðlinda og koma í veg fyrir að efni og hlutir hverfi úr hagkerfinu sem úrgangur.
Þjónusta og viðfangsefni VSÓ á sviði úrgangsmála eru m.a.:
- Endurnotkunaráætlanir bygginga.
- Niðurrifsúttektir bygginga og áætlun um meðhöndlun úrgangs.
- Svæðisáætlanir sveitarfélaga um meðhöndlun úrgangs.
- Leiðbeiningar og handbækur um úrgangsstjórnun fyrir sveitarfélög.
- Umhverfisúttektir og meðferð hættulegra efna við niðurrif bygginga.
- Úrgangsstjórnun fyrirtækja og á byggingastöðum.
- Greiningar á uppruna úrgangs, eðli, magni og mögulegri meðhöndlun.
- Úrgangsforvarnir, t.d. koma í veg fyrir myndun úrgangs.
Umhverfisvitund landsmanna hefur aukist hröðum skrefum og áhugi almennings á endurvinnslu og betri nýtingu efna hefur aukist.
Lagaumhverfi á sviði úrgangsmála hefur breyst mikið á síðustu árum. Umfangsmiklar lagabreytingar komu til framkvæmda 1. janúar 2023, sbr. breytingalög nr. 103/2021. Markmið breytinganna er að skapa skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis svo stuðla megi að sjálfbærari auðlindanotkun og draga úr myndun úrgangs.
Fyrir framkvæmdir yfir ákveðinni stærð skal skv. byggingarreglugerð nr. 112/2012 gera áætlun um meðhöndlun úrgangs. Í áætluninni skulu koma fram upplýsingar um skipulagningu, skráningu, flokkun, endurnýtingu og förgun úrgangs. Áætluninni skal skila með umsókn um byggingarleyfi. Sjá einnig Leiðbeiningar um meðhöndlun byggingarúrgangs sem nýtast við skipulag á meðferð úrgangsins.
Dæmi um verkefni á sviði úrgangsstjórnunar:
Guðný Káradóttir
Teymisstjóri – Græna leiðin
gudny@vso.is
s: 585 9138