26. janúar 2017
VSÓ er framúrskarandi fyrirtæki þriðja árið í röð
Fjárhags- og viðskiptaupplýsingafyrirtækið Creditinfo vinnur árlega ítarlega greiningu á fyrirtækjum srkáðum á Íslandi og gefur út lista yfir frammúrskarandi fyrirtæki ársins. Einungis þau fyrirtæki sem uppfylla ströng skilyrði Creditinfo, að teknu tilliti til þátta sem varða rekstur þeirra og stöðu, komast á listann.
Alls 624 fyrirtæki komust á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki árið 2016, eða um 1,7% af þeim 35.000 fyrirtækjum sem skráð eru í hlutafélagagaskrá, og er VSÓ Ráðgjöf eitt þeirra fyrirtækja sem komust á listann.
VSÓ var einnig á lista Creditinfo árin 2014 og 2015 og er því nú í hópi framúrskarandi fyrirtækja þriðja árið í röð.
VSÓ Ráðgjöf, framúrskarandi fyrirtæki